Wednesday, October 24, 2007

Enn lifir bloggið :-)



Góðan dag dömur, herrar, börn og öll önnur lifandi kvikindi á þessari plánetu.



Það er ekki stutt síðan hér var bloggað síðast og það má með sanni segja að margt hafi breyst á þessum langa tíma sem er að verða að mig minnir 10 mánuðir eða svo jafnvel rúmlega það.

Í síðasta pósti var ég að koma fram skoðunum mínum um virka samkeppni, það er nú ljóst að sú aðgerð mín stóðst ekki alveg væntingar því bloggið sem varð til á blogcentral var svo ómeðfærilegt að ég nennti ekki að nota það, sumir eiga eflaust eftir að tengja þetta við það að maður er nú aftur að byrja hjá sínu gamla company-i og finnst þá ekki skrýtið að maður byrji að blogga aftur um öll þau ævintýri sem gerast hjá Air Atlanta Icelandic, eflaust gæti sú skýring átt einhvern þátt í því, ekki gott að segja, en gott er það þó að google er nú tengt við gamla góða blogspot-ið þannig að ekki fer maður nú að kvarta núna undan einhverju veseni sem áður var, enda google bara tær snilld á allan sinn hátt og fá þeir 5 stjörnur fyrir frammistöðu sína gagnvart forritum á vefnum sem öðru aðgengilegu frá þeim. Jæja, hvað um það, maður er nú fullur tilhlökkunar að byrja aftur hjá Atlanta og þeysa um fjöll og firnindi sem fyrr, þá er ekki úr vegi að byrja að blogga almennilega aftur. Látum þetta nægja með afsakanir og þess háttar vandræði.



Post mortem á undangengnu frá síðasta pósti



Það hefur nú margt drifið á dagana síðan einhvern tímann i desember í fyrra, það fyrsta sem brennur á mér er þegar hringt var í mig á gamlársdag og beðinn um að sleppa MEGA áramótapartýi hjá Birki og fórna mér fyrir málstað Atlanta og fara strax út til Jeddah á nýársdagsmorgun til að koma pílagrímum sína ferð til Mekkah. Birkir fær hér því formlega afsökun á því að við (ég og Lilja) mættum ekki, gengur betur næst, lofa því.

15. jan fór ég heim frá Jeddah til að fara á námskeið hjá Icelandair.

16. jan byrjaði námskeið hjá Icelandair og ég var nokkuð þungur í kg talið.

21. apríl kláraði ég simma hjá Icelandair, enn nokkuð þungur í kg talið.

22. apríl hófst niðurtalningin hjá karlinum, orðinn þrítugur, partýhöld verða haldin seinna.

3. maí byrjaði að fljúga hjá Icelandair, þ.e. mitt fyrsta flug, frá Keflavík til Frankfuhrt og til baka.

21. maí kláraði Lilja mín 3. árið í hjúkkunni með glæsibrag :D

7. júní átti Lilja afmæli og haldið var svaka boð í T23, ekki amalegt.

1. júlí fór golfið loks að ganga hjá karlinum og stóð það loksins út sumarið, gott ár hjá karlinum ;)

5.-8. júlí fórum ég og Lilja lögðum ég og Lilja land undir fót og fórum í massa landkönnunarleiðangur um suðurlandið, Landmannalaugar, Gjáin í Þjórsárdal og endalaust meir af hlutum skoðaðir en á endanum var farið á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum sem var með besta móti og bið ég að heilsa öllum Eyjamönnum, þeir eru bara snillingar.

1. ágúst gerðist nú hlutur sem ekki er á færi nema mjög svo öflugs fólks sem á allt gott skilið, já, Hjalti og Maja eignuðust stúlkubarn, 15 merkur að mig minnir, rosalegt, til hamingju enn og aftur, stálpuð og flott, sé þarna gífurlegt efni í góðan golfara ;)

Jæja, upptalningar upptalningar, það fer vel á því að upptalningin endi á þessum örlagaríka degi Hjalta og Maju, en svona til að gera gífurlega langa sögu stutta, þá var restin af sumrinu tær snilld, og nú loksins er karlinn búinn að taka bílskúrinn í gegn og gera allt klárt fyrir flugvélasmíði, m.a.s. verkfærin og alles tilbúin og klár, það vantar bara verkefnið, en það kemur fyrr en síðar.

Undirritaður hefur nú komist að því að Darth Vader (Svarthöfði úr Star Wars) á sér bróður, snillingurinn Birkir benti mér á þennan snilling. Já, sá heitir Chad Vader og er bara klikkaður snillingur, vinnur í supermarkaði og þar takast á völd dagvaktarinnar og næturvaktarinnar, bara snilld, bendi fólki á að kynna sér þetta vel, mikil og góð skemmtun að skoða þetta á youtube.

Mínir menn í skemmtanabransanum þessa dagana eru menn sem ég hreinlega get horft á aftur og aftur á youtube. Það eru Flight of the conchords, þessir gaurar eru frá Nýja Sjálandi, eru reyndar búnir að "make-a" það í USA en hvað um það, það er bara snilld að horfa a þessa gaura.



Hrósið

Hrósið í þessu bloggi fær sjónvarpsþátturinn Næturvaktin. Þetta er besti íslenski grínþáttur sem ég hef séð lengi lengi lengi, tær snilld, takk fyrir þetta 365 (því miður eru þeir líkam með lastið).



Lastið

Fær 365 fjölmiðlar fyrir að segja fólki sem eru áskrifendur að Sýn, að fótboltinn sé að koma heim aftur (Football coming home auglýsingin hjá þeim), en svo er bara búin til ný sjónvarpsstöð sem allir áskrifendur þurfa að kaupa til að sjá enska boltann, lélegt, því miður.



Það verður héðan í frá hrós og last í hverju bloggi hér eftir.


Er að vinna í að koma því við á bloggi þessu að fólk geti bætt við athugasemdum hér á síðunni. Vonandi hefst það fyrr eða síðar.

Að lokum vil ég bara senda öllum KR-ingum hamingjuóskir með Íslandsmeistaratitilinn í körfu og bendi stuðningsmönnum annara félaga á það að KR er STÓRVELDI!!!

Kveðjur í bili


3 comments:

Lilja Dögg said...

Var að fatta þegar ég les þetta núna að þetta er eitt langt blogg, hélt að hitt væri old stuff. En já síðasta sumar var snilld hjá okkur!!! Vona bara að guð sé að refsa okkur með rigningunni núna svo við fáum aftur svona gott sumar og síðasta sumar... plííís!!!! þúsund kossar!!!

Birkir Örn said...

Ég vil hefja mál mitt með að segja hversu mikil snilld það er að þú hafir opnað á komment hér. Nú loks getur maður drullað yfir þig á þinni eigin síðu, en þarf ekki að vera að eyða eigin plássi á eigin bloggsíðum í skítkast og almennar niðurlægingar. Þrefalt Húrra!

Svo vil ég bjóða þig velkominn heim. Tveir mótorar eru fyrir kellinga, gylltar strípur fyrir fólk með minnimáttarkennd og hatturinn fór þér aldrei, svo asnaleg lína sem kemur á skallann þegar þú tekur hann af ;) Ég spái því að þú farir aldrei til baka. Once you go black....

Afsökunarbeiðnin er tekin gild, svo lengi sem staðið verði við loforð um þrítugsafmælisteiti sem kemur fram í bloggnum!

kveðja frá KL

Verdandi Alheimsforseti said...

Vissi það að ekki væri mikið að segja frá í starfi Icelandair flugmanna.
Um leið og karlinn er kominn heim aftur á alvöru þotu á alvöru destinations sem ekki er á færi hvaða bómullarhnoðra sem er að lenda á, þá fara sögurnar að koma.

Velk. til baka