Saturday, November 10, 2007

Lagos, Luxembourg, Brussel og morðhótun í N.Y!!!

Góðan daginn gott fólk
Jæja, nú hefur maður aldeilis lent í ýmsu upp á síðkastið frá síðasta bloggi.Jájá, karlinn búinn að fara til Lagos þar sem hreint ótrúlegir atburðir áttu sér stað auk þess sem undirritaður gerði nánast í buxurnar þegar 5000 karlmenn komu hlaupandi að bílnum þegar við vorum að keyra út á flugvöll. Já, 5 þúsund karlmenn allir klæddir í hálfgerð hvít nærföt komu hlaupandi kl. 5 að morgni að bilnum er við vorum að keyra út á flugvöll, undirritaður hélt að mennirnir væru að fara að ráðast á bílinn og draga okkur svo lifandi (eða ólifandi) út í vegakant og ræna okkur öllu steini léttara. Nei, það gerðist ekki, heldur var liðið að hlaupa og slást við hvorn annan, já, þetta var æfing fyrir þá sem vildu komast í lögregluna!!! Þetta var hlaupapróf lögregluskolans í Lagos (Nígeríu), þeir 50 fyrstu fengu vinnu, og þeir sem á eftir fremstu mönnum komu reyndu að hindra aðra með alls kyns ólöglegum hætti að komast fram fyrir þá, þannig að ekki er hægt að segja að upprennandi lögreglumenn byrji vel, þ.e. með því að kýla andstæðinga sína sem reyna að hlaupa fram úr þeim í hlaupaprófi, undarlegt nokk! Jæja, við komumst út úr þessum látum í myrkrinu og héldum áfram okkar leið út á flugvöll og þar beið vélin eftir okkur, ótrúlegt en satt, æpandi á okkur að koma okkur í burtu sem fyrst! Sem og við gerðum. Næstu dagar voru haldnir hátíðlegir í Luxembourg, Lux var algert himnaríki eftir ruglið í Lagos, þar var miðbærinn tekinn í bakaríið nokkrum sinnum bæði með því að fara fótgangandi frá hótelinu eða í leigubíl, en göngutúrar voru þó nánast allsráðandi nema þegar dregið hafði fyrir sólu, þá voru notaðir leigubílar, mjög fínt að komast í siðmenningu eftir ruglið í Lagos. Jájá, nú frá Lux var haldið til BRU sl. mánudag, skrýtið að fá svona gott danskt smörrebröd í Brussel, en það er samt vel þess virði á den Copenhagen Tavern, á horni Waterloo Blvd. og annarar ónefndrar götu. Daginn eftir flugum við til N.Y. Nýja Jórvík er alltaf ágæt, en í þetta skiptið ákvað ég að taka Manhattan í gegn eins og hún leggur sig á 2 jafn fljótum. Já, er búinn sl. 2 daga að labba í rúmar 15 klst. út um alla Manhattan. Á þessu rölti mínu, sem alltaf var með Sibba Arngríms kafteini með í för, hefur mikið gengið á. Best er að byrja á hlutum sem koma lífi manns við, mál er þannig með vexti að ég og Sibbi vorum búnir að þræða allar götur frá 1st Avenue og 34. W & Est til 9. av. og að Cenral Park. Þreyttir ákváðum við nú samt að kíkja inn í eina myndavélabúð sem var á vegi okkar á 54. stræti og 8 avenue þegar við vorum að koma að Central Park. Þá gerist margt skrýtið þegar ég spyr sölumann um eina ákv. linsu sem ég hafði hug á að kanna, þá hverfur hann út úr búðinni og einhver ítala drullusokkur kemur og fer að sýna mér allan andskotann sem kom mér ekkert við í búðinni, þegar ég segist nú bara hafa áhuga á einni linsu sem ég hafi verið að pæla í þá fer hann að sýna mér þá linsu ásamt fleirum, fer svo að bæta inn filterum og alls konar aukabúnaði og bjóða mér þetta til kaups. Upphaflega var linsan sem ég ætlaði að kaupa á 699 USD.Þetta var einföld 75-300mm canon aðdráttarlinsa, en það dugði ekki, hann varð að sýna mér Sigma linsu sem var miklu betri líka og kostaði 1200 USD. Ég sagðist engan áhuga hafa svoleiðis verðum og ætlaði að labba út og þá byrjaði aðal ballið. Hann fór að bjóða mér linsurnar á betri kjörum og segist hafa fengið 15 linsur frítt frá supplier því þegar hann pantaði síðast vegna "promotion" sem hann á að vera með á þeim. Segist að lokum láta mig fá hana fyrir 100USD, þ.e. Canon linsuna.Mér fannst þetta í meira lagi undarlegt og segi honum það að ég sé hættur við þetta og ég muni bara koma aftur ef mér snýst hugur. Svo labba ég út að útidyrahurðinni, þá öskrar helvítið á mig og segir orðrétt, ég afsaka málfarið hér á eftir: "You f***ing idiot, I´ve opened everything for you in this store and you just walk out without doing business with me!", ég segi við hann að ég sé nú bara viðskiptavinur að skoða hlutina og svona á nú ekki að koma fram við kannski tilvonandi viðskiptavini, og þetta hafi nú gert það að verkum að ég sé nú bara farinn, þá segir helv. "Let me ask you a question, do you think it is normal to walk out here without doing business with me", ég sagði já, þá trylltist hann! Kom aftur f-orðið 10 sinnum ásamt fleiru, og að lokum segir hann, "If you want wings, I´ll take you in the back here now, and soon you´ll fly"!!!!!!!! Með þessa hótun á bakinu flaug ég út að Sibba sem var í símanum og við drifum okkur inn í mannfjöldann og löbbuðum inn í Central Park. Fyrst hlógum við nú bara að þessu, en helv. fávitinn hefur örugglega verið á einhverjum efnum frá félögum sínum í mobbunni hérna í N.Y. Ótrúlegt, ég mæli með því að fólk haldi sig við stóru verslanirnar hér og haldi sér fjarri svona minni electrical stores sem eru úti um allt hér í bæ!!! Nú, seinni dagurinn í N.Y. sem var í fyrradag var ansi fínn, þá fór ég með Sibba aftur ásamt Mekkinó Björns. í rosalega gönguferð hér, hér var allt labbað, byrjað að labba fram hjá Empire State og þaðan til á 9. av. og 34th street þar sem B&H verslunin er, héngum í henni smá stund og ákváðum að halda labbinu áfram niður að city hall. Þar með löbbuðum við í gegnum allt Chelsea hverfið, East Village, Meat District, Soho, Chinatown, Little Italy ásamt mörgum fleiri hverfum enda tók þetta labb allan daginn. Á einum stað nálægt city hall var J&R búðin, sem er ansi góð fyrir þá sem eru að spá í alls konar rafmagnstæki, og keypti ég mér lítið GPS tæki til að hafa þegar maður er að ferðast. Mjög handhægt. Að lokum var ég orðinn svo illa haldinn af blöðrum á löppunum vegna þess að ég hafði enga gönguskó með mér að við urðum að taka leigara upp á hótel. Svo var flug um kvöldið og karlinn kláraði line check-inn um nóttina og gekk allt vel. Nú er ég kominn til Houston verð hér í aðra 5 daga eða svo. Stefnan er tekin á að nota GPS-ið í bílaleigubíl hérna og þvælast um á alla staði sem fyrir auga manns verða og hef ég ásamt Mekkinó og Willy Karstens ákveðið að byrja á þessu ferðalagi á morgun.
Að lokum er komið að hrósi og lasti!!!
Hrósið fær hin frábæra verslun J&R fyrir að bjóða upp á allan andskotann í rafmagnstækjum á góðum verðum sem allir Íslendingar eiga að geta sætt sig við.
Lastið fær að sjálfsögðu Ítalakvikindið sem hótaði mér öllu illu, og get ég ekki sagt annað en að sá maður sé best geymdur í Rússnesku fangelsi í Siberiu.
Bið að heilsa í bili,
So long

1 comment:

Birkir Örn said...

JAHÉRNAHÉR!