Saturday, December 01, 2007

Vantar vinnu, er með punginn!

Fyrirsögnin á sér rætur að rekja til atvinnuauglýsingar sem hengd var upp á útidyrahurðina á hinum virta og fræga matsölustað Kaffivagninn úti á Granda fyrir þó nokkru. Ekki laust við að maður gæti verið í svipuðum hugleiðingum þar sem maður kláraði nú prófin í pungnum í gær og gekk allt vel og eðlilega fyrir sig. Spurningin bara sú hvort maður orði sína auglýsingu aðeins betur :)

Í annað. Mikið rosalega er gaman að koma heim á skerið í 50 hnútum og banaröffi nánast alla daga hérna á þessu mikla og skemmtilega túristalandi þar sem náttúran er svo óspjölluð aðallega vegna þess að fólk fýkur út í buskann þegar það kemur hingað og höfuðborg hér fer nánast eftir vindátt. Meðan landið fýkur burt ........
Þetta er lygileg veðrátta hérna og Birkir gerir tilkall til hróssins á þessari síðu með því að halda sig svona langt og lengi í burtu frá skerinu, en heyrst hefur að ríkisstjórnin sé að hugsa um að svipta hann ríkisborgararétti vegna þeirra fáu daga sem hann gistir heima á fróni, auk þess sem hann klikkar á að halda áramótapartý loksins þegar karlinn getur mætt!!

Annars er stefnan tekin á Jakana núna þegar þessu pungaprófi er lokið og vonandi fer nú veðráttan að lagast með tilheyrandi flugi og skemmtilegheitum. Karlinn búinn að endurnýja medical-ið hjá sér og allt til reiðu til áframhaldandi flugs. Stefnan tekin á að plata Hjaltann í túra og klára þar með tjekkinn á stóra yak-inn.

Eitt er vert að minnast á hér. Maggi og Magga voru að eignast strák, heilar 18 merkur og næstum jafn stór og ég, rosalegt! Ég óska þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju, glæsileg frammistaða.

Að öðru leyti er lítið til að tala um. Fer út aftur næsta föstudag, þ.e. 7. des. Leiðin liggur þá aftur til Brussel og flug til N.Y. og Houston mun halda áfram hjá mér. Ekkert að því þó svo að kanarnir geti stundum verið ansi þreyttir á ðí.

Hrósið
Hrósið fær hinn mikli snillingur Bill Clinton fyrir að vera frábær karakter og lang lang lang besti stjórnmálamaður í öllum heiminum auk þess að vera KR-ingur og sannur viðskiptavinur Bæjarins bestu! Birkir er í 2. sæti í þessu bloggi!

Lastið
Veðurguðirnir fá lastið í þessum pósti, þar sem gersamlega ómögulegt hefur verið að þrífa bílinn, spila golf, eða bara gera hvað sem er, þvílíkt rugl í gangi með veðrið. Hér með áskorun til þeirra að laga þetta aðeins, alla veganna þannig að maður geti staðið í lappirnar!

Lifið heil og skemmtið ykkur nú öll í desember, það er skylda :)

2 comments:

BÖA said...

Fyrst er maður lofaður á alla kanta (sem er vel skiljanlegt).

Svo er drullað yfir mann fyrir að halda ekki áramótapartí (hvenar verður þrítugsafmælispartíið hjá Hallaranum?)

Og að lokum er maður gjaldfelldur í annað sætið á eftir gráhærðu, vindlareikjandi, amerískum hjartasjúkling

HVAÐ ER Í GANGI HÉRNA!?!?!?

Unknown said...

Til hamingju með punginn.