Sunday, December 16, 2007


Allt frá pungaprófi til gítars

Það hefur ansi mikið staðið á þessu bloggi sem nú er skrifað því blogg sem ég var nánast búinn að klára um daginn þurrkaðist óvart út og ég var ansi lengi að nenna að byrja aftur, en læt hér nú loksins vaða.

Frá 1. desember sl. Hefur margt drifið á daga mína, fyrst var ég heima og hafði það gott í nokkra daga, tók pungaprófið, safnaði olíu á föt og putta með því að skipta um generator á litla Rússanum og peppaði upp hana Lilju mína undir komandi próf.


5. des var haldið aftur af stað út til Brussel. Brussel breytist lítið á tæpum 2 vikum en það er þó ágætt að hanga þar þegar maður hefur topp menn með sér á staðnum. Gummi Jónbjörnss. var þarna mættur og náðum við nokkrum dögum í fínni stemmningu.
Einn daginn mætti Jóhanna Gylfa á svæðið því Iceair þvælist líka stundum til Brussel, Óskar V mætti líka og lagði hópurinn Brussel undir fót og þrammaði gjörsamlega út um alla borg, í þessum göngutúr sáum við lítinn gosbrunn sem var höggmynd af pissandi dreng(eitthvað fræg stytta, man ekki af hverju) og má segja að miðað við þennan dreng þurfi Beckham ekki að skammast sín mikið ef tekið er tillit til síðustu nærfataauglýsingar kappans.
Þau undur og stórmerki áttu sér svo stað eftir nokkra daga viðveru að Halli Óskarss. mætir á svæðið og við fljúgum saman til N.Y. og Houston (leiðin liggur reyndar þaðan á morgun til Brussel aftur), í þessum túr kláraði Halli kafteins “check-inn” sinn og þ.a.l. mikil stemmning á okkar bæ, má segja að hellt hafi verið svolítið af rauðri málningu í bænum í N.Y. Gaman að því og Halli vel að þessu kominn enda eðal maður þar á ferð.

Ég ætla nú ekki að tjá mig mikið um Houston, best að segja að þetta sé með leiðinlegri stöðum sem maður kemur á í USA, Sears er nálægt en það er það eina.

AÐAL ATRIÐIÐ í þessum túr er að sjálfsögðu það að karlinn keypti sér mega flottan massa snilldar ævintýralega rosalega geðveikt flottan og öflugan gítar. Myndin segir nánast allt sem segja þarf en hvað um það, hann er geggjaður og þvílíkt gaman og gott að spila á hann, sá albesti sem ég hef prófað. Hægt er að segja að ég hafi nánast verið að fara úr límingunum í prófunum á alls konar Gibson gítörum upp á síðkastið. Góð ráð frá Hjaltanum komu að góðu gagni eins og venjulega (alltaf hægt að stóla á Hjaltann, m.a.s. þegar velja á drykki handa nýskriðnum kafteini, Tom Collins klikkar ekki!) og voru þau veigamikill þáttur í valinu sem á endanum varð Gibson Les Paul Studio. Nú er að sjálfsögðu takmarkið að “out-solo-a” Hjaltann við fyrsta tækifæri ;)



Hrósið:
Hrósið fær Hjaltinn, flugbróðirinn mikli, fyrir góð ráð í þágu tónlistar og menningar, og einnig fyrir að vera vel liðtækur við skipti á generator á litla Rússanum.

Lastið:
Lastið fær Marriott hótelið hér í Houston, það er á svo lélegum stað að það er ekkert eðlilegt. Út um gluggan horfi ég á flugvélar ca. 30m frá mér, og vaknar maður á nóttunni við það að vélar eru að starta mótorum fyrir utan gluggan. Já, flugvallarhótel eru ömurleg, sérstaklega þegar maður hangir á þeim í meir en 3 daga!!! Sakna Doubletree hótelsins sem var sínu skárra þó það væri langt út úr borginni líka.

Læt þetta duga í bili,

kveðjur til allra,
Chao


5 comments:

Unknown said...

Þetta er ekkert smá mega massa snilldar ævintýralega rosalega geðveikt flottur og öflugur gítar sem þú varst að fá þér. Til hamingju hann. Við skulum bara vona að mennirnir í hliðinu verði ekki of vondir við þig þegar þú kemur með hann heim. Ég geri ráð fyrir því að manni verði boðið í smá blús og öl þegar þú kemur heim ;)

Verdandi Alheimsforseti said...

Það þarf ekki að kunna að spila á gítar ef maður á Gibson.
Ef fólk spyr, "hvernig gítar áttu" og þú segir "ég á auðvitað Gibson", þá halda allir að maður sé ogeðslega klár og málið er gjörsamlega dautt.

p.s. Tom collins killar ekki

HJR

Champinn said...

Boðið verður í blús og öl þegar ég kem heim, það er nokk staðfest ;)

Lilja Dögg said...

Eigum við að ræða það eitthvað!!! já fínt já sæll já fínt já sæll!
Love you!

Birkir Örn said...

Tel ég svo vera að menn hafi hlerað Tom Collins frá sjálfum ofurmanninum of skrifast hann því sjálfkrafa á engan ennan en hann... eigum við að ræða það eitthvað?
MELIR!