Jæja góðan og blessaðan daginn!
Enn er ég staddur í Frankfuhrt, en í þessari 3-ja vikna reisu minni frá eyjunni í norðri hef ég einungis farið 2 ferðir frá Frankfuhrt, eina til New York og eina til Chicago, reyndar með viðkomu í Gander. Nú er séð að ég fari til Chicago á fimmtudagskvöldið og verði þar fram á mánudag, fari svo heim nk. þriðjudag. Jájájájá, heim eftir viku. Allt í góðu, þ.a.l. sést að maður flýgur rétt rúmlega 50 tíma í þessari rotation sem er ekkert glæsó.
Hvað um það, verst er að maður heyrir ekkert í Hjaltanum sem flakkar um allan heiminn án þess að láta kóng né prest vita og þykist bara vera töffari niður í Dubai.
Eins og fólk veit, þá er ég alltaf maðurinn sem vill koma við á sem flestum stöðum, þar sem ég fæ ekki líklega frí yfir hátíðarnar, þá er ég að hugsa um að sækja um Indian Hajj-ið ef svo fer að það verði tekið á bumbu! Já, sjáum til hvað verður í þeim efnum.
No comments:
Post a Comment