Það var ekk leiðinlegt í gærkveldi, nei, hitti fína menn hérna á hótelinu og við skelltum okkur á "House of blues" barinn hérna í Chicago. Þvílík og önnur eins stemmning, ROSALEGT!!!!!!!!! Bestu tónleikar sem ég farið á held ég bara! Þarna voru tvær hljómsveitir að spila, og aðal grúppan var "The Chicago Playboys" ásamt "The Big James" en hann söng og spilaði á básunu af þvílíkum krafti og þvílíkri snilld að ég hef aldrei séð annað eins, sóló-ar á básunu og öll önnur hljóðfæri voru svo magnaðir að maður stóð bara á öndinni á tímabilli, þvílík spilamennska. Spilararnir voru allir svo góðir að það var ekki einn maður inni sem leiddist, rosalegt! Stemningin í byrjun var svona lala, fólk ekki að mæta allt of snemma, en þegar leið á kvöldið voru allir farnir að dansa út um allt, upp á borðum og alles, þvílík stemmning, og þegar þeir enduðu á slagaranum (allt annað spilað var frumsamið) "I´m a soul man" þá ætlaði allt um koll að keyra, 15 min útgáfa af þessu lagi þar sem allir voru í dúndurstemmningu en fremstur í flokki þá var saxafónleikarinn sem átti hreint ótrúlegan endasprett. Ég verð reyndar að minnast þess að hljómsveitin lét bassaleikarann gera þvílíkt dæmi á sviðinu að það var nánast ótrúlegt, söngvarinn "The Big James" öskraði á hann, "Funk it up" svona 30 sinnum og hann sólóaði á bassanum þannig að allt ætlaði um koll að keyra þarna inni, þannig að það endaði með því að allir hættu að spila og áhorfendur hrópuðu "Funk it up" og bassaleikarinn var bara með einleik í smá tíma með áhorfendum, og þvílíkur hraði á spilamennskunni, rosalegt. Af öllum þessum lýsingum mínum er auðsjáanlegt að þetta er eitt af því magnaðra sem ég hef séð, ótrúleg skemmtun!!!!
Jæja, það styttist í heimkomu sem er á þriðjudagseftirmiðdag, bíð spenntur eftir að komast í hlýjuna heima á fróni þvi hér í Chicago er þvílíkur kuldi að það hálfa væri nóg, -11 gráður og nístir kuldinn mann inn að beini svona á venjulegum degi.
Hins vegar er thanksgiving hátíðin í hávegum þessa dagana í USA og það gerir það að verkum að traffíkin hérna er svakaleg, hvort sem það er gangandi vegfarendur eða annað, það er allt gersamlega pakkað.
Jæja, ég læt hérna nokkrar myndir fylgja með
Á leið niður í bæ á aðal pub-inn í borginni ;-)

Ein af karlinum við Michigan Avenue á brúnni.

Svo er það auðvitað aðal staðurinn!!!!!

Svo ein svona af aðal bandinu, Big James and the Chicago Playboys!!!! ROSALEGIR, hver hlóðfæraleikarinn öðrum betri!!!
No comments:
Post a Comment