Sunday, November 20, 2005

Guten Morgen!

Ja, ich bin wieder nach Frankfuhrt aber ich komme von New York heute morgen. Neinei, heyrið mig, þetta er of mikið!
Jájá, kominn aftur á Steigenberger hótelið í Frankfuhrt þar sem nákvæmlega ekkert er að gerast, og það eina sem hægt er að gera er að taka bus yfir í Terminal 1 eða 2 (2 er svona fínt til tilbreytingar :). Það þýðir ekki að gráta yfir því, en það er sunnudagur í dag og því ekki mikið opið í miðbænum og þ.a.l. ekki spennandi að fara þangað heldur. EN, karlinn er að hugsa um að fá sér bílaleigubíl og kíkja bara almennilega á þeta land sem er undir fótum hans þessa dagana, því ég virðist kominn í nokkurra daga frí! Síðast er ég vissi átti ég að fara aftur til Chicago á morgun, en það virðist breytt og ég veit ekkert.
New York var ekki tekin með trompi, hins vegar var Long Island tekin með þvílíku trompi!!! Já, skrýtið að hótelið okkar í NY er á Long Island. Það er í svona "ríku" hverfi og það fer ekki fram hjá manni þegar bílarnir þjóta fram hjá. Ég og Altug Yesiltac (frábær capitan) gengum í ca. 4 klst. báða dagana, þannig að menn lögðust í enga leti þarna. Fórum á flugsafn, Long Island's Aviation Museum, en ég varð frekar fyrir vonbrigðum með það. Annars endaði þetta með fínum mat fyrra kvöldið hjá okkur á ítölskum stað, en ferðirnar á Starbuck Coffee voru óteljandi þessa daga líkt og vatnshólarnir fyrir vestan ;)
Adios amigos!

No comments: