
Heimaborg Capone
Já, einu sinni var maður að nafni Al Capone alls ráðandi í þessari borg og maður að nafni Elliot Ness sem handsamaði þennan glæpamann og dró fyrir rétt þannig að réttvísin náði fram að ganga í Bandaríkjunum og stoðin að hruni mafíunnar í USA varð.
Já, margt er sögulegt við borgina sem ég er nú, en það er auðvitað Chicago. Þvílík og önnur eins borg. Þetta er ein allra flottasta og skemmtilegasta borg sem ég hef komið til í Bandaríkjunum, það er engin spurning. Algerlega meiriháttar. Ekki skaðar að hafa fengið svítu á efstu hæð á hótelinu (37. hæð) þannig að maður horfir langt niður út um gluggann ;-)
Jæja, ég fæ nú ekki að dvelja við lengi hérna því ég fer í nótt, eða um kl. 1000 að ísl. tíma. Samt gaman að sjá þetta allt saman og ekki skemmir fyrir að ég fer hingað aftur eftir nokkra daga. Snilld. Tíminn var samt nægur til að kaupa sér einn jakka og eina peysu sem auðvitað stendur á Chicago 1833!!!
Annars er það að frétta að heimahöfnin mín (base-inn minn) er Frankfuhrt. Það er mjög fínt nema það að hótelið í Frankfuhrt er fyrir neðan allar hellur, en það sleppur því maður hittir svo mikið að fólki þarna.
Jájá, næsta ferð mín verður til New York á miðvikudaginn, verð þar í einn og hálfan dag, fer svo aftur til baka, og svo aftur út til Chicago. Að lokum er svo þessi fína mynd sem Hjalti lét taka af okkur félögunum á einum pub í Frankfuhrt, þarna eru auðvitað ég, Hjalti og Arnór Valdimarss. (Addi). Ekki leiðinlegt þarna því þetta var fyrsta skipti sem ég fór í miðborg Frankfuhrt.
Jæja, kveðjur til allra!
No comments:
Post a Comment