Góðan dag!
Jæja, hér getur maður tekið gleði sína á ný eftir nokkra ansi dapra daga í Frankfuhrt því nú er maður kominn til Chicago aftur og það er ekkert venjulega gaman, þetta er bara allra besta borgin í USA, ég held bara að ég verði að segja það. Hér er m.a.s. náttúrufegurð (sem á nú ekkert allt of oft við í stórborgum í USA) og falleg og hrein borg með fínu fólki, helsti galli borgarinnar er sá að það er ekki séns að leigubílstjóri viti hvert hann á að fara þegar þú biður hann um að fara eitthvað. M.a.s. fór ég í Boeing skrifstofublokkina í dag, sem er risa "skyscraper" hér í miðri Chicago með risa skilti á toppnum sem sést margar mílur í burtu (sá það m.a.s. í aðfluginu inn á flugvöllinn!) en leigubílstjórinn vissi ekkert hvar það var!!!
Hvað um það, í kvöld ætla ég á frægan jazz-stað sem heitir Chicago blues, þar er engin venjulega stemmning og ætla ég mér að njóta hennar í kvöld með áhöfninni, ekki leiðinlegt það.
Annað risaatriði hér, ég er búinn að kaupa mér nýja digital myndavél!!!!!!!! Já, Sony T5, svaka græja með öllu tilheyrandi! Nú get ég loksins aftur farið að setja myndir af ýmsu skemmtilegu inn á netið ;) Hvað um það, eftir að hafa verið á löngu flugi yfir atlantshafið, skellti mér í Compusa, Digital Camera Shop og Boeing World offfices building. Því miður var ekki opið í Boeing store þannig að ég þarf að fara aftur þangað á morgun, og þar mun maður örugglega geta eytt nokkrum dollurum :-)
Á mánudag held ég aftur til Frankfuhrt og svo beint heim á þriðjudag, verð kominn á skerið um ca. kl. 1600 á þriðjudaginn og er heimafiðringurinn nú þegar farinn að magnast.
Ég er búinn að ákveða að kalla góðan vin minn, hr. Vidar Thronsden, kaftein ribs. Hann hefur síðan við fórum í loftið í Frankfuhrt, einungis talað um ribs! Það eina sem hann vill er ribs og ekkert annað en ribs!!! Hann er nú nokkuð svona "sturdy fellow" eins og þeir segja, og gaman verður að sjá hve stór "rack"-inn af rifjunum verður hjá honum í kvöld. Spurning um að mæta með teljarann og taka þetta allt saman upp á nýju vélina mína ;)
Annars bið ég að heilsa í bili, sé ykkur flest í næstu viku!
No comments:
Post a Comment