Wednesday, June 23, 2004

Sæl og blessud öll sömul!

Ég er svo klár að ég náði að redda íslensku lyklaborði í þetta skiptið!

Ég er nú alveg búinn að fá nóg af Englandi (þangað til á morgun). Hér er íslenskt janúar veður sem er algerlega að gera mann vitlausan. Samt ætla ég í golf þó svo að vindurinn hér í Gatwick sé allt upp í 45 hnúta. Það er ekkert venjulegt hvað veðrið er dapurt hérna, enn einn daginn, sést best á því að allt er að verða vitlaust út af Wimbledon tenniskepninni því þar er ekki hægt að spila vegna veðurs. Það er miður fyrir mig þvi tennis er snilldar sport og ég svo rosalega mikið inn í því að það væri bara greiði að hafa það í sjonvarpinu í mínu aðgerðarleysi.
Tékkar á móti þjóðverjum í kvöld í EM. Það verður gaman að sjá hina léttleikandi tékka taka gamla Bismarck lýðveldið í bakaríið í þessum leik þar sem að þeir geta nákvæmlega ekki neitt og spila alltaf jafn hundleiðinlegan fótbolta. Að horfa á Þjóðverja spila fótbolta er eins og að horfa á bob-sleða keppni á ólympíuleikunum, alveg vonlaust!!! Sleðabolti, þar sem skársti leikmaðurinn ber hið merkilega nafn, Schweinsteiger! Er það von að maður spyrji hvað hann gerði í fyrra lífi!
Hér var maður að derra sig við mig, var eitthvað ekki alveg nógu rólegur á ðí, þannig að ég sagði bara:
"Sigurjón digri, hvað ertu að vilja upp á dekk, þú ert undarleg týpa, með vonlausan tónlistarsmekk"! Hann skildi auðvitað ekkert hvað ég var að segja og fór núna rétt í þessu, í fússi. Gott að kunna íslensku, enginn til að rífast við mann.
Annars allt við það sama, nema ég sakna þess að hafa ekki Douglas Adams bókina með mér. Ég er orðinn svo spenntur að lesa "Life, The Universe and Everything" sem er þriðja bindið af Hitchhiker´s guide to the galaxy! Þeir sem ekki hafa lesið þessar bækur, skulu gera svo vel að gera það strax, annars mun Hitchhikerinn elta ykkur (eða ég)!!!!!
Þeir sem hafa áhuga á golfi, hljóta að hafa tekið gleði sína um síðustu helgi. Þá var 2. risamótið á döfinni og einn allra besti "swinger" (á eftir mér) í golfinu í dag, Retief Goosen frá RSA, sigraði með glæsibrag. Hann hringdi í mig á laugardaginn og spurði hvort ég væri með, ég sagði nei, þá sagði hann hjúkk og vann mótið!
Jæja, best að fara að koma sér í golf í vindinum, þannig að maður geti haldið boltanum lágum þegar maður kemur heim, ekki veitir af!

No comments: