Tuesday, June 15, 2004

Góðan dag eða Buenos Diaz á spænsku!

Ég hef tekið þann pól í hæðina að kenna mönnum eina (eða fleiri) erlendar slettur í hverju bloggi :-)

Nú er búið að fara eina ferð til Tenerife, en viti menn karlinn flaug ekki, heldur observe-aði ég (mér til gamans) með þeim sem voru að fljúga. Þetta gerði það að verkum að ég átti svo að fljúga á morgun en viti menn, ekki flýg ég á morgun, heldur er ég sendur aftur til shittttyyyyy UK á morgun. Andskotinn hafi það, því nú segjast tjallarnir eitthvað hafa fyrir mig að gera, það kemur í ljós, en ef enn eitt kjaftæðið hefst þegar ég mæti þar á svæðið, þá segist ég koma aftur eftir viku, því ég ætli að æfa golfið í Kantarisborg (Canterbury), en þeir sem ekki vita, þá var ég þar í 6 vikna æfingabúðum sumarið 1997. Nú er bara að fá Atlanta til að bóka hótel fyrir mig þar!!!
Hvað sem því líður, þá hefur karlinn lítið gert í Madrid nema sofa og horfa á EM í fótbolta. Merkilegt hvað ég hef oft rétt fyrir mér í sambandi við boltann. Ég sagði að illa gæti farið ef Liverpool þunglyndið myndi berast í landsliðið hjá Englendingum og viti menn, þegar leikurinn er nánast búinn gefur Heskey aukaspyrnu á fáránlegum stað! Heskey fær núll í einkunn fyrir frammistöðu sína í þessum leik! Hvað svo, jú Gerrard breyttist í libba looser þegar 3 min voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma með því að gefa boltann ævintýralega til baka á leikmann sem enginn vissi að væri til staðar, og úr var víti. Sannarlega auðvelt að segja að Liverpool hafi tapað þessum leik gegn Frökkum. Hins vegar stóð Ledley King svo rosalega vel fyrir sínu í þessum leik, og fær hann lof fyrir. Beckham er frábær ef hann tekur ekki vítaspyrnur í framtíðinni, látum Lampard sjá um þær héðan í frá fyrir enska landsliðið. Hins vegar fá Barthez og Zidane mínar hæstu einkunnir fyrir að sýna okkur enn einu sinni hvernig taka á leik í sínar hendur og vinna. Þetta er þeim meðfætt enda kom í ljós um leið og Barthez fór frá United, að þá unnu þeir ekki enska titilinn. Auðsýnt er að ég held ansi mikið með Englendingum í þessari keppni, en ég tek ekkert frá Frökkum í þessum leik, málið er einfalt, þeir kunna að vinna, og allir í enska liðinu kunna það líka nema Liverpool leikmenn, þeim er gersamlega ógerlegt að læra að vinna leiki!!!
Að lokum hrós til allra Tottenham leikmanna sem stóðu sig vel, auk þess fær Scholes hrós fyrir að frábæran leik á miðjunni, því miður geta menn lítið gert að því þegar heilalausir menn frá bítlaborginni klúðra leiknum!

chao for now!

No comments: