Tuesday, June 01, 2004

Sæl og blessuð öll sömul!!!

Mikið er nú gaman að hafa verið á Íslandi í heila viku, það er alveg lygilega gaman að koma heim og hitta allt hið frábæra fólk sem hér býr.
Annars skrapp karlinn til Vestmannaeyja á laugardag og skellti sér á ball með SSSól (sem ég vil meina að hafi verið ball með Helga Björns því hann er einn eftir í bandinu) og var ekkert lítið gaman þar. Karlinn í góðum fíling, var reyndar ekki valinn dansari kvöldsins að þessu sinni þar sem erfitt er að finna réttu sporin við Kembvútchef (Komdu aftur til mín Dísa (lalala) Dííssa mín) og fleiri þess háttar slagara.
Alla veganna, gaman að vera til hérna á skerinu (og skerjunum) og lýk ég þessu með þessum orðum:

Rabbabara Rúna, þarna er hún, Rabbabara Rúna, rosa pía er hún.

No comments: