Saturday, June 04, 2005

Heil og sæl öll sömul!!!

Jæja, haldið þið að ég hafi ekki bara losnað úr prísundinni í Melbourne í dag, og sendur til baka til KL á 1. class miða!!! Það var ekki ónýtt þar sem flugið var tæpir 8 tímar á milli þessara staða.
Annars er það að frétta að nú sit ég í KL og bora í nefið og bíð eftir því að komast í golf á morgun.
Ég hins vegar gerði þann stórmerkilega hlut að spila golf í Ástralíu, landi Greg Normans sem allir vita að hefur hermt eftir mér öll þessi ár, fór reyndar að herma eftir einhverjum öðrum fyrir 2 árum enda farinn að slappast! Jájá, spilaði þennan fína völl, "Kingston Links", reyndar meira en fínn því þessi völlur var hreinlega frábær og mikil skemmtun að spila þar, skorið ágætt og allir sáttir, ég, kylfurnar og golfpokinn. Eftir þennan fína hring, ákvað ég nú að fara til Sydney. Þangað fór ég og var þar í eina nótt. Þar var veðrið svo skínandi bingó flott að ég var alveg búinn á því eftir að hafa gengið þar í nokkra klukkutíma. Afskaplega falleg og skemmtileg borg!
Daginn eftir flaug ég svo aftur til Melbourne og átti að vera þar fram á þriðjudag, en eitthvað var fólk farið að sakna mín í KL þannig að ég var sendur hingað aftur i dag. ´
Nú er bara spilað golf á morgun og allt í sómanum. Ég minni fólk á það að ég mun mæta á skerið aftur þ. 14. júní og þá verður fjör!
Kveðjur!

No comments: