Monday, May 30, 2005

Góðan dag!

Jæja, eftir langt ferðalag er maður nú aftur kominn til Kuala! Jájá, frá Orly í París, yfir til Charles de Gaulle, þaðan til Amsterdam, þaðan til Dubai, 6 tímar í Dubai og svo endað á Kuala. Er óhætt að segja að augun hafi verið orðin nokkuð dofin þegar komið var hingað, en þó náði ég smá svefni á leiðinni milli Dubai og KL. Út var haldið þ. 24. maí til Orly í París þar sem simminn var tekinn í bakaríið. Svo er maður nú loks hér, og auðvitað er ekkert annað að gera en að byrja að fljúga strax. Það gerist nú á eftir þar sem ég fer héðan til Melbourne í Ástralíu. Þar mun í dvelja til 2. júní, fer þá yfir til Sidney og flýg þaðan aftur yfir til Melbourne. Kem svo aftur til KL frá Melbourne þ. 7 júní, þannig að löng ferð með góðu stoppi í landi Ása og Tralla hefst nú á eftir.
Annars er allt gott að frétta, hitinn í KL er enn þolanlegur þannig að maður þarf bara að nota 10 boli á dag (hafði gert ráð fyrir 20!), þannig að þetta er allt hið besta mál. Reyndar skilst mér að hitinn í Ástralíu sé nú ekkert spes, sérstaklega ekki í Melbourne. Ég ætla nú samt að taka settið með mér og reyna að spila á Royal Melbourne vellinum og slá vallarmet Ernie Els sem hann á þar á bæ. Vonandi tekst manni að ná hring þar.
Bið að heilsa í bili!

No comments: