Wednesday, July 21, 2004
Jæja gott fólk, þá er maður búinn að klára heimavistina í bili. Jamm, 10 dagar liðnir og ég kominn aftur á Gatwick base, sem er frekar furðulegt því þegar ég kom þangað var ég strax sendur í dag til Manchester. Héðan flýg ég á morgun til Orlando og verð þar í 2 daga. Hvað sem því líður þá er ágætt að vera kominn út aftur og sjá hvernig blíðan færist alltaf með manni á milli landa. Ég sagðist ætla að koma með blíðuna heim, og gerði það, ekki einn slæmur dagur í 10 daga, alls ekki slæmt, svo þegar til Bretlands er komið, þá er komið gott veður hér, mætti halda að maður væri Amon Ra eða eitthvað þess háttar!
No comments:
Post a Comment